Gervigreindarúttekt
Farið yfir ferla, kerfi og gögn. Fundin verkefni með mestan ávinning. Forgangsraðað eftir arðsemi. Skilað í skýrri skýrslu og aðgerðaáætlun.
input: ferlar, kerfi, gögn → output: skýrsla, aðgerðaáætlun
sjalfvirk@reykjavik:~$ ./audit --business "fjölmiðill" [ok] skannar ferla ................... 24 fundust [ok] finnur handavinnu ............... 11 verk [ok] forgangsraðar eftir arðsemi ..... toppurinn: útgáfupípa [ok] smíðar frumgerð ................. tilbúin á 7 dögum [ok] tengir við wordpress, cdn, miðla samþykkt [run] sjálfvirk í vinnu ............... ▌ sjalfvirk@reykjavik:~$ _
Við smíðum, tengjum og rekum lausnir sem taka handavinnuna af íslenskum fyrirtækjum. Úttekt, innleiðing og vöktun. Allt í einni pípu.
// þjónusta
Farið yfir ferla, kerfi og gögn. Fundin verkefni með mestan ávinning. Forgangsraðað eftir arðsemi. Skilað í skýrri skýrslu og aðgerðaáætlun.
input: ferlar, kerfi, gögn → output: skýrsla, aðgerðaáætlun
Lausnin smíðuð og tengd við kerfin sem þegar eru í notkun: WordPress, WooCommerce, bókhald, áskriftarkerfi, samfélagsmiðlar, Google, Microsoft. Prófað, afhent, vaktað.
input: ferli → output: lausn í rekstri
Útgáfa, birtingar, afstemmingar, skýrslur, þýðingar. Endurtekin vinna keyrð sjálfkrafa með mannlegu samþykki þar sem það skiptir máli.
input: handavinna → output: pípa
Vefurinn gerður sýnilegur í ChatGPT, Perplexity, Google AI Overviews. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla, skipulögð gögn og efni sem gervigreind vitnar í.
input: vefur → output: sýnileiki í LLM
// verkefnalogg
// vandinn
Hálfur vinnudagur fór í eftirvinnslu á hverjum þætti: myndband, hljóð, stiklur, texti, lógó, stuttmyndbönd og WordPress-færsla, allt í höndum.
// smíði
Pípa sem tekur myndbandsupptöku og framleiðir mp3 með hljóðstyrksjöfnun (loudness normalisation), kóðar stiklu fyrir Instagram, sendir myndband á myndbandaveitu (CDN) og útbýr WordPress-færslu með lýsingu, tímakóðum og myndum. Stuttmyndbönd klippast út frá völdum tímastimplum með sjálfvirkum skjátextum og hreinsun á hikorðum eins og ehh og sko. Lógó styrktaraðila og lokaspjöld sett inn.
// áður: hálfur vinnudagur / þátt → nú: keyrir að mestu sjálft
// vandinn
Ein grein átti að ná til mismunandi markhópa á sjö Facebook-síðum, Instagram og X. Það var annaðhvort of mikil vinna eða gert hratt og illa.
// smíði
Birtingarkerfi sem tekur grein og framleiðir ólíka fyrirsögn og mynd fyrir hverja rás í útliti vörumerkisins. Allt tímasett. Næturkeyrsla greinir hvað gengur best (lestur, deilingar, smellir) og nærir lærdómsskrá sem bætir næstu birtingar.
// áður: ein færsla á rás → nú: margfalt magn, markhópastillt
// vandinn
Þrjú kerfi héldu á áskrifendum: áskriftarvettvangur, WooCommerce og hlaðvarpsveita. Enginn vissi með vissu hverjir voru raunverulega virkir, tekjur láku út.
// smíði
Daglegt afstemmingarferli sem ber saman kerfin, finnur aðganga sem höfðu ekki verið afturkallaðir eftir að greiðslur hættu, og skiptir fyrrverandi áskrifendum í hópa fyrir endurheimtarherferðir (win-back). Lykiltölur sendar í morgunsamantekt á hverjum degi.
// áður: tekjuleki, óvissa → nú: stöðvað í fyrstu keyrslu
// vandinn
Hagsmunasamtök með málstað, en of fáar hendur til að rýna í opinber gögn og skýrslur.
// smíði
Mælaborð, meðal annars um ríkisfjármál, sem uppfærast sjálfkrafa úr opinberum gögnum. Staðreyndavakt rýnir skýrslur og ber tölur saman við heimildir. Frumgerð að bréfum frá almenningi til stjórnvalda sem gervigreind hjálpar að semja á málefnalegan hátt.
// áður: gögn ólesin → nú: gögn virkjuð
// vandinn
Rannsóknarvefur í jarðvísindum þurfti að miðla hafdýptargögnum, gervihnatta- og hafísgögnum, og rökstyðja styrki.
// smíði
Gagnvirk kort með hafdýptargögnum (bathymetry), gervihnatta- og hafísgögnum. Mismunandi lög fyrir fagfólk og einfaldari sýn fyrir styrkumsóknir og almenning. Rannsókn á styrkjamöguleikum fylgdi.
// áður: gögn dreifð → nú: einn vettvangur
// vandinn
Markaðsgögn þarf að streyma og vista í beinni allan sólarhringinn, með strax viðvörunum þegar eitthvað hreyfist.
// smíði
Streymiskerfi sem vistar markaðsgögn í rauntíma með vöktun, sjálfvirkum viðvörunum og endurræsingu þegar þjónustur haltra. Að auki greining á fréttamerkjum: hvernig fréttir hreyfa gögnin.
// áður: handstýrt rekstur → nú: rekstur sem sefur
// vandinn
Birgjar skiluðu CSV-skrám á ensku, á ólíkum sniðum. Vörulistinn átti að vera á íslensku og uppfærast reglulega.
// smíði
Vörulistavefur sem byggist sjálfkrafa úr CSV-skrám, með gervigreindarþýðingu yfir á íslensku. Hálfsjálfvirkar birtingar á samfélagsmiðla úr efni birgja, þar sem eigandinn samþykkir hverja færslu með einum smelli.
// áður: handvirkar þýðingar → nú: vörulistinn alltaf nýr
// vandinn
Vefforrit þurfti að tala við notendur á mörgum tungumálum og finnast í Google jafnt sem ChatGPT.
// smíði
Vefforrit á ensku, þýsku, spænsku, frönsku og íslensku með gervigreindarröddum, vefbestun og sýnileika í gervigreindarleit. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla og skipulögð gögn fyrir hvert tungumál.
// áður: fannst illa → nú: sést þar sem notendur eru
// pípan
[1] úttekt → 1-2 vikur. ferlar, kerfi, gögn skönnuð. verkefni raðað eftir arðsemi. [2] frumgerð → fljótleg, sýnileg. þú sérð það virka áður en lengra er haldið. [3] innleiðing → smíðað, tengt, prófað í rekstri með raunverulegum gögnum. [4] rekstur → vöktun, viðhald, umbætur. lausnin batnar með tímanum.
// afstaða
// samband
Við förum yfir ferlana þína í stuttu samtali og metum hvar gervigreind getur létt mesta vinnu. Engar skuldbindingar.
$ mailto hallo@sjalfvirk.is
bókaðu úttekt