Sjálfvirk

VIÐ TÖKUM
VINNUNA
AF ÞÉR.

Við innleiðum gervigreind í íslensk fyrirtæki. Við finnum verkin sem taka tímann, byggjum lausnirnar, tengjum þær við kerfin og rekum þær áfram.

Engar froður. Engar glærusýningar. Verk í rekstri.

BÓKAÐU ÚTTEKT →

ÞJÓNUSTA.

  1. 01

    GERVIGREINDARÚTTEKT

    Farið yfir ferla, kerfi og gögn. Fundin verkefni með mestan ávinning. Forgangsraðað eftir arðsemi. Skilað í skýrri skýrslu og aðgerðaáætlun.

  2. 02

    INNLEIÐING

    Lausnin smíðuð og tengd við kerfin sem þegar eru í notkun: WordPress, WooCommerce, bókhald, áskriftarkerfi, samfélagsmiðla, Google og Microsoft. Prófað, afhent, vaktað.

  3. 03

    SJÁLFVIRKNIVÆÐING FERLA

    Útgáfa, birtingar, afstemmingar, skýrslur, þýðingar. Endurtekin vinna keyrð sjálfkrafa með mannlegu samþykki þar sem það skiptir máli.

  4. 04

    SÝNILEIKI Í GERVIGREINDARLEIT

    Vefurinn gerður sýnilegur í ChatGPT, Perplexity, Google AI Overviews. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla, skipulögð gögn og efni sem gervigreind vitnar í.

ÁTTA VERKEFNI. NAFNLAUS.

01

FJÖLMIÐLUN

SJÁLFVIRK ÞÁTTAÚTGÁFA

Hlaðvarps- og fjölmiðlafyrirtæki. Hálfur vinnudagur á þátt í eftirvinnslu.

VANDINN
Hver þáttur tók hálfan vinnudag: myndband, hljóð, stiklur, texti, lógó, stuttmyndbönd, WordPress-færsla. Allt í höndum.
SMÍÐI
Upptökur fara sjálfkrafa í pípu sem framleiðir mp3 með hljóðstyrksjöfnun (loudness normalisation), kóðar Instagram-stiklu, sendir myndband á myndbandaveitu (CDN) og útbýr WordPress-færslu með lýsingu, tímakóðum og myndum. Stuttmyndbönd klippt út frá tímastimplum með sjálfvirkum skjátextum og hreinsun á hikorðum (ehh, sko). Lógó styrktaraðila og lokaspjöld sett inn.
ÁVINNINGUR
Hálfur vinnudagur varð að eftirliti. Starfsfólkið hendir sér í efnið.

02

FJÖLMIÐLUN

SJÁLFVIRKAR SAMFÉLAGSMIÐLABIRTINGAR

Ein grein. Sjö Facebook-síður, Instagram, X. Ólíkar fyrirsagnir, markhópastillt.

VANDINN
Markaðsstarf átti að ná til ólíkra hópa á mörgum síðum. Það var ýmist of mikil vinna eða gert hratt og illa.
SMÍÐI
Kerfi sem tekur eina grein og framleiðir ólíka fyrirsögn og mynd fyrir hverja síðu og markhóp í útliti vörumerkisins. Allt tímasett. Næturkeyrsla greinir hvað gengur best (lestur, deilingar, smellir) og nærir lærdómsskrá sem bætir næstu birtingar.
ÁVINNINGUR
Margfalt magn efnis. Markaðsstarfið lærir sjálfkrafa.

03

ÁSKRIFTIR

AFSTEMMING ÁSKRIFENDA

Áskriftarfyrirtæki. Þrjú kerfi. Tekjuleki.

VANDINN
Áskriftarvettvangur, WooCommerce og hlaðvarpsveita héldu á áskrifendum. Enginn vissi hverjir voru raunverulega virkir.
SMÍÐI
Daglegt afstemmingarferli ber saman áskrifendur milli kerfanna þriggja og finnur aðganga sem höfðu ekki verið afturkallaðir eftir að greiðslur hættu. Fyrrverandi áskrifendum skipt í hópa fyrir endurheimtarherferðir (win-back). Lykiltölur birtast í morgunsamantekt daglega.
ÁVINNINGUR
Tekjuleki stoppaður í fyrstu keyrslu. Rekstrarstjórnin veit nákvæmlega hvað er að gerast.

04

SAMTÖK

GAGNAMÆLABORÐ FYRIR HAGSMUNASAMTÖK

Opinber gögn, skýrslur, málstaður. Of fáar hendur.

VANDINN
Hagsmunasamtök með málstað en of lítinn tíma til að rýna í opinber gögn og skýrslur.
SMÍÐI
Mælaborð, meðal annars um ríkisfjármál, sem uppfærast sjálfkrafa úr opinberum gögnum. Staðreyndavakt rýnir skýrslur og ber tölur saman við heimildir. Frumgerð að bréfum frá almenningi til stjórnvalda sem gervigreind hjálpar að semja á málefnalegan hátt.
ÁVINNINGUR
Samtökin tala í skýrum tölum og geta virkjað almenning með trúverðugum hætti.

05

JARÐVÍSINDI

RANNSÓKNARVEFUR MEÐ GAGNVIRKUM KORTUM

Landgrunn, hafdýpi, gervihnettir. Of flókið efni fyrir hefðbundinn vef.

VANDINN
Rannsóknarvefur í jarðvísindum þurfti að miðla miklu, á kortum, og rökstyðja styrki.
SMÍÐI
Gagnvirk kort með hafdýptargögnum (bathymetry), gervihnatta- og hafísgögnum. Mismunandi lög fyrir fagfólk og einfaldari sýn fyrir styrkumsóknir og almenning. Rannsókn á styrkjamöguleikum fylgdi.
ÁVINNINGUR
Miðlægur vettvangur til að sýna gögn, útskýra niðurstöður og rökstyðja styrki.

06

RAUNTÍMI

MARKAÐSGÖGN Í BEINNI, ALLAN SÓLARHRINGINN

Streymi, vöktun, viðvaranir. Kerfi sem sefur ekki.

VANDINN
Markaðsgögn þurfti að streyma og vista í beinni allan sólarhringinn, með strax viðvörunum ef eitthvað hreyfist.
SMÍÐI
Streymiskerfi sem vistar markaðsgögn í rauntíma með vöktun, sjálfvirkum viðvörunum og endurræsingu þegar þjónustur haltra. Að auki greining á fréttamerkjum: hvernig fréttir hreyfa gögnin.
ÁVINNINGUR
Rekstur sem sefur rólega. Fréttaatvik tengd við gagnahreyfingar með skýrri sönnun.

07

HEILDSALA

VÖRULISTAVEFUR OG SAMFÉLAGSMIÐLAR Í HEILDSÖLU

CSV frá birgjum. Þýðingar á íslensku. Færslur með einum smelli.

VANDINN
Birgjar skiluðu CSV-skrám á ensku, á ólíkum sniðum. Vörulistinn átti að vera á íslensku og uppfærast reglulega.
SMÍÐI
Vörulistavefur sem byggist sjálfkrafa úr CSV-skrám, með gervigreindarþýðingu yfir á íslensku. Hálfsjálfvirkar birtingar á samfélagsmiðla úr efni birgja, þar sem eigandinn samþykkir hverja færslu með einum smelli.
ÁVINNINGUR
Vörulistinn alltaf nýr. Markaðsstarf heldur sér uppi með smellum.

08

FJÖLTYNGI

FJÖLTYNGD NEYTENDAFORRIT Á VEFNUM

Fimm tungumál. Vefbestun. Sýnileiki í gervigreindarleit.

VANDINN
Vefforrit þurfti að tala við notendur á mörgum tungumálum og finnast í bæði Google og ChatGPT.
SMÍÐI
Vefforrit á ensku, þýsku, spænsku, frönsku og íslensku með gervigreindarröddum. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla og skipulögð gögn fyrir hvert tungumál. Efni skrifað þannig að stór málmódel geta vitnað í það með öryggi.
ÁVINNINGUR
Forritið sést þar sem notendur eru í dag.

FJÖGUR SKREF.

  1. 1

    ÚTTEKT

    1-2 vikur. Ferlar, kerfi, gögn skönnuð. Verkefni raðað eftir arðsemi.

  2. 2

    FRUMGERÐ

    Fljótleg, sýnileg. Þú sérð það virka áður en lengra er haldið.

  3. 3

    INNLEIÐING

    Smíðað, tengt, prófað í rekstri með raunverulegum gögnum.

  4. 4

    REKSTUR

    Vöktun, viðhald, umbætur. Lausnin batnar með tímanum.

AFSTAÐA.

BÓKAÐU ÚTTEKT.

Þrjátíu mínútur. Við förum yfir ferlana þína og metum hvar gervigreind getur létt mesta vinnu. Engar skuldbindingar.

HALLO@SJALFVIRK.IS →