Gervigreindarúttekt
Farið yfir ferla, kerfi og gögn. Verkefni raðað eftir arðsemi. Skilað í skýrri skýrslu með aðgerðaáætlun.
- Tími
- 1-2 vikur
- Afrakstur
- Skýrsla + áætlun
Yfirlit · uppfært í beinni
Sjálfvirk hannar, smíðar og rekur sjálfvirk kerfi fyrir íslensk fyrirtæki. Hvert verkefni er einingu í vel vöktuðu stjórnborði: lifandi tölur, viðvaranir þegar þess þarf, og mannlegt samþykki þar sem það skiptir máli.
8
Verkefni í rekstri
24/7
Vöktun og endurræsing
4
Þjónustur, allar með mælaborði
1
Netfang til að byrja: hallo
Þjónustulag
Farið yfir ferla, kerfi og gögn. Verkefni raðað eftir arðsemi. Skilað í skýrri skýrslu með aðgerðaáætlun.
Lausnin smíðuð og tengd við WordPress, WooCommerce, bókhald, áskriftarkerfi, samfélagsmiðla, Google og Microsoft. Prófað, afhent, vaktað.
Útgáfa, birtingar, afstemmingar, skýrslur, þýðingar. Keyrir sjálfkrafa með mannlegu samþykki þar sem það skiptir máli.
ChatGPT, Perplexity, Google AI Overviews. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla, skipulögð gögn og efni sem gervigreind vitnar í.
Verkefnalag · átta einingar
Hvert verkefni er sýnd eining með stöðuljósi, lykiltölum og lýsingu á því sem var smíðað. Við skiptum ekki nafnalausum lýsingum við ákveðnar tölur, en við skrifum skýrt hvað við gerðum.
Vandinn: Hlaðvarps- og fjölmiðlafyrirtæki eyddi hálfum vinnudegi á hvern þátt í eftirvinnslu. Myndband, hljóð, stiklur, texti, lógó, stuttmyndbönd og WordPress-færsla, allt í höndum.
Smíði: Myndbandsupptaka rennur í gegnum ferli sem framleiðir mp3 með hljóðstyrksjöfnun (loudness normalisation), kóðar stiklu fyrir Instagram, sendir myndband á myndbandaveitu (CDN), og útbýr WordPress-færslu með lýsingu, tímakóðum og myndum. Stuttmyndbönd klippt út frá völdum tímastimplum með sjálfvirkum skjátextum og hreinsun á hikorðum (ehh, sko). Lógó styrktaraðila og lokaspjöld sett inn áður en þátturinn fer út.
Áður: hálfur vinnudagur á þátt. Nú: keyrir að mestu sjálft.
Vandinn: Ein grein átti að ná til mismunandi markhópa á sjö Facebook-síðum, Instagram og X, með ólíkri fyrirsögn og mynd fyrir hverja rás.
Smíði: Birtingarkerfi tekur eina grein og býr til sjálfkrafa ólíka fyrirsögn og mynd fyrir hverja síðu í útliti vörumerkisins. Allt tímasett. Næturkeyrsla greinir hvað gengur best (lestur, deilingar, smellir) og nærir lærdómsskrá sem bætir næstu birtingar.
Áður: ein færsla á rás. Nú: margfalt magn, markhópastillt, lærir sjálfkrafa.
Vandinn: Áskriftarfyrirtæki rak þrjú kerfi hlið við hlið (áskriftarvettvang, WooCommerce, hlaðvarpsveitu). Enginn vissi hverjir voru raunverulega virkir og tekjur láku út.
Smíði: Daglegt afstemmingarferli ber saman áskrifendur milli kerfanna og finnur aðganga sem höfðu ekki verið afturkallaðir eftir að greiðslur hættu. Fyrrverandi áskrifendum er skipt í hópa fyrir endurheimtarherferðir (win-back). Lykiltölur sendar í morgunsamantekt daglega.
Áður: tekjuleki og óvissa. Nú: stöðvað í fyrstu keyrslu.
Vandinn: Hagsmunasamtök með málstað en of fáar hendur til að rýna í opinber gögn og skýrslur.
Smíði: Mælaborð, meðal annars um ríkisfjármál, sem uppfærast sjálfkrafa úr opinberum gögnum. Staðreyndavakt rýnir skýrslur og ber tölur saman við heimildir. Frumgerð að bréfum frá almenningi til stjórnvalda sem gervigreind hjálpar að semja á málefnalegan hátt.
Áður: gögn ólesin. Nú: málstaðurinn talar í tölum sem erfitt er að hunsa.
Vandinn: Vísindagögn um landgrunnið dreifð og ósamhæfð. Erfitt að koma þeim á framfæri við styrkveitendur og almenning.
Smíði: Gagnvirk kort með hafdýptargögnum (bathymetry), gervihnatta- og hafísgögnum. Lagskipt framsetning fyrir fagfólk, einföld sýn fyrir styrkumsóknir og almenning. Rannsókn á styrkjamöguleikum fylgdi.
Áður: gögn án vettvangs. Nú: einn vefur, mörg lög, skýr rök fyrir styrkjum.
Vandinn: Markaðsgögn þurfti að streyma, vista og greina í beinni allan sólarhringinn, með strax viðvörunum þegar eitthvað hreyfist.
Smíði: Streymiskerfi með vöktun, sjálfvirkum viðvörunum og endurræsingu þegar þjónustur haltra. Greining á fréttamerkjum skoðar hvernig fréttir hreyfa gögnin og flaggar atvik sem þarf að rýna.
Áður: handstýrður rekstur. Nú: rekstur sem sefur rólega.
Vandinn: Birgjar skiluðu CSV-skrám á ensku, á ólíkum sniðum. Vörulistinn átti að vera á íslensku og uppfærast reglulega.
Smíði: Vörulistavefur byggist sjálfkrafa úr CSV-skrám með gervigreindarþýðingu yfir á íslensku og flokkun. Hálfsjálfvirkar birtingar á samfélagsmiðla úr efni birgja, þar sem eigandinn samþykkir hverja færslu með einum smelli.
Áður: handvirkar þýðingar. Nú: vörulistinn alltaf nýr, markaðsstarf með smellum.
Vandinn: Vefforrit þurfti að tala við notendur á mörgum tungumálum og finnast í bæði Google og ChatGPT.
Smíði: Vefforrit á ensku, þýsku, spænsku, frönsku og íslensku með gervigreindarröddum, vefbestun og sýnileika í gervigreindarleit. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla og skipulögð gögn fyrir hvert tungumál. Efni skrifað þannig að stór málmódel geta vísað í það með öryggi.
Áður: fannst illa. Nú: sést þar sem notendur eru.
Aðferð · fjögur skref
01
1-2 vikur. Ferlar, kerfi og gögn skoðuð. Verkefni raðað eftir arðsemi.
02
Fljótleg, sýnileg frumgerð þar sem ávinningurinn er mestur.
03
Smíðað, tengt og prófað í rekstri með raunverulegum gögnum.
04
Vöktun og reglulegar umbætur. Lausnin batnar með tímanum.
Samband · fyrsti fundur
Við förum yfir ferlana þína og metum hvar gervigreind getur létt mesta vinnu. Engar skuldbindingar.