01
Gervigreindarúttekt
Farið yfir ferla, kerfi og gögn. Verkefni raðað eftir arðsemi. Skilað í skýrri skýrslu með aðgerðaáætlun.
Sjálfvirk / 2026 / Reykjavík
Við finnum verkin sem taka tímann, byggjum lausnirnar, tengjum þær við kerfin sem þú notar og rekum þær áfram. Allt á íslensku.
30 mín · engar skuldbindingar
01
Þjónusta
Flestar úttektir enda á sambland af tveimur eða fleiri. Við ákveðum með þér hvar hefst og hvar skilið er eftir.
01
Farið yfir ferla, kerfi og gögn. Verkefni raðað eftir arðsemi. Skilað í skýrri skýrslu með aðgerðaáætlun.
02
Lausnin smíðuð og tengd við WordPress, WooCommerce, bókhald, áskriftarkerfi, samfélagsmiðla, Google og Microsoft. Prófað, afhent, vaktað.
03
Útgáfa, birtingar, afstemmingar, skýrslur og þýðingar keyrðar sjálfkrafa. Mannlegt samþykki þar sem það skiptir máli.
04
ChatGPT, Perplexity, Google AI Overviews. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla, skipulögð gögn og efni sem gervigreind vitnar í.
02
Verkefni
Nafnlaus af virðingu við viðskiptavini. Lýst í skrefum þannig að þú sérð nákvæmlega hvað við byggðum og af hverju.
01
Fjölmiðlun
Rekstur · áframhaldandi
Vandinn. Hálfur vinnudagur á þátt í eftirvinnslu. Myndband, hljóð, stiklur, texti, lógó, stuttmyndbönd og WordPress-færsla, allt í höndum.
Smíði. Myndbandsupptaka rennur í gegnum ferli sem framleiðir mp3 með hljóðstyrksjöfnun (loudness normalisation), kóðar stiklu fyrir Instagram, sendir myndband á myndbandaveitu (CDN) og útbýr WordPress-færslu með lýsingu, tímakóðum og myndum. Stuttmyndbönd klippt út frá völdum tímastimplum með sjálfvirkum skjátextum og hreinsun á hikorðum eins og ehh og sko. Lógó styrktaraðila og lokaspjöld sett inn áður en þátturinn fer út.
Ávinningur. Hálfur vinnudagur varð að eftirliti. Starfsfólkið hendir sér í efnið.
02
Fjölmiðlun
Rekstur · áframhaldandi
Vandinn. Ein grein átti að ná til mismunandi markhópa á sjö Facebook-síðum, Instagram og X, með ólíkri fyrirsögn og mynd fyrir hverja rás.
Smíði. Kerfi sem tekur eina grein og framleiðir ólíka fyrirsögn og mynd fyrir hverja síðu í útliti vörumerkisins. Allt tímasett. Næturkeyrsla greinir hvað gengur best (lestur, deilingar, smellir) og nærir lærdómsskrá sem bætir næstu birtingar.
Ávinningur. Margfalt magn, markhópastillt. Markaðsstarfið lærir sjálfkrafa.
03
Áskriftir
Rekstur · áframhaldandi
Vandinn. Áskriftarvettvangur, WooCommerce og hlaðvarpsveita héldu á áskrifendum. Enginn vissi hverjir voru raunverulega virkir og tekjur láku út.
Smíði. Daglegt afstemmingarferli ber saman áskrifendur milli kerfanna og finnur aðganga sem höfðu ekki verið afturkallaðir eftir að greiðslur hættu. Fyrrverandi áskrifendum er skipt í hópa fyrir endurheimtarherferðir (win-back). Lykiltölur sendar í morgunsamantekt daglega.
Ávinningur. Tekjuleki stoppaður í fyrstu keyrslu. Rekstrarstjórnin veit hvað er að gerast.
04
Samtök
Rekstur · áframhaldandi
Vandinn. Hagsmunasamtök með málstað en of fáar hendur til að rýna í opinber gögn og skýrslur.
Smíði. Mælaborð, meðal annars um ríkisfjármál, sem uppfærast sjálfkrafa úr opinberum gögnum. Staðreyndavakt rýnir skýrslur og ber tölur saman við heimildir. Frumgerð að bréfum frá almenningi til stjórnvalda sem gervigreind hjálpar að semja á málefnalegan hátt.
Ávinningur. Málstaðurinn talar í skýrum tölum við fjölmiðla og stjórnvöld.
05
Jarðvísindi
Afhent · styrkt
Vandinn. Vísindagögn um landgrunnið dreifð og ósamhæfð. Erfitt að koma þeim á framfæri við styrkveitendur og almenning.
Smíði. Gagnvirk kort með hafdýptargögnum (bathymetry), gervihnatta- og hafísgögnum. Lagskipt framsetning fyrir fagfólk, einföld sýn fyrir styrkumsóknir og almenning. Rannsókn á styrkjamöguleikum fylgdi.
Ávinningur. Miðlægur vettvangur. Rök fyrir styrkjum sem erfitt er að hunsa.
06
Rauntími
Rekstur · 24/7
Vandinn. Markaðsgögn þarf að streyma og vista í beinni allan sólarhringinn, með strax viðvörunum þegar eitthvað hreyfist.
Smíði. Streymiskerfi með vöktun, sjálfvirkum viðvörunum og endurræsingu þegar þjónustur haltra. Greining á fréttamerkjum skoðar hvernig fréttir hreyfa gögnin og flaggar atvik.
Ávinningur. Rekstur sem sefur rólega. Fréttaatvik tengd við gagnahreyfingar með sönnun.
07
Heildsala
Rekstur · áframhaldandi
Vandinn. Birgjar skiluðu CSV-skrám á ensku, á ólíkum sniðum. Vörulistinn átti að vera á íslensku og uppfærast reglulega.
Smíði. Vörulistavefur byggist sjálfkrafa úr CSV-skrám með gervigreindarþýðingu yfir á íslensku og flokkun. Hálfsjálfvirkar birtingar á samfélagsmiðla úr efni birgja, þar sem eigandinn samþykkir hverja færslu með einum smelli.
Ávinningur. Vörulistinn alltaf nýr. Markaðsstarf með smellum.
08
Fjöltyngi
Afhent · fjöltyngt
Vandinn. Vefforrit þurfti að tala við notendur á mörgum tungumálum og finnast í bæði Google og ChatGPT.
Smíði. Vefforrit á ensku, þýsku, spænsku, frönsku og íslensku með gervigreindarröddum, vefbestun og sýnileika í gervigreindarleit. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla og skipulögð gögn fyrir hvert tungumál.
Ávinningur. Forritið sést þar sem notendur eru í dag.
03
Ferli
01
1-2 vikur. Ferlar, kerfi og gögn skönnuð. Verkefni raðað eftir arðsemi.
02
Fljótleg, sýnileg frumgerð þar sem ávinningurinn er mestur.
03
Smíðað, tengt og prófað í rekstri með raunverulegum gögnum.
04
Vöktun og reglulegar umbætur. Lausnin batnar með tímanum.
04
Samband
Við förum yfir ferlana þína og metum hvar gervigreind getur létt mesta vinnu. Engar skuldbindingar.
Bókaðu úttekt