I.
Gervigreindarúttekt
Vönduð greining á ferlum, kerfum og gögnum. Verkefnin forgangsröðuð eftir arðsemi og skilað í skýrri skýrslu með aðgerðaáætlun sem fyrirtækið getur unnið eftir sjálft, eða við tökum næsta skref.
Ráðgjafarstofa í gervigreind, stofnuð í Reykjavík
Við hönnum, smíðum og rekum sjálfvirkar lausnir fyrir fyrirtæki sem taka reksturinn sinn alvarlega. Vandað handverk, þagnarskylda og niðurstöður sem þola skoðun.
Þjónustur
I.
Vönduð greining á ferlum, kerfum og gögnum. Verkefnin forgangsröðuð eftir arðsemi og skilað í skýrri skýrslu með aðgerðaáætlun sem fyrirtækið getur unnið eftir sjálft, eða við tökum næsta skref.
II.
Lausnin smíðuð með kostgæfni og tengd við þau kerfi sem þegar eru í notkun: WordPress, WooCommerce, bókhald, áskriftarkerfi, samfélagsmiðla, Google og Microsoft. Prófuð, afhent og vaktað í rekstri.
III.
Endurtekin vinna, útgáfa, birtingar, afstemmingar, skýrslur og þýðingar, keyrð sjálfkrafa. Mannlegt samþykki þar sem fagleg dómgreind þarf að ráða.
IV.
Vefurinn gerður sýnilegur í ChatGPT, Perplexity, Google AI Overviews og öðrum nýjum viðmótum. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla, skipulögð gögn og efni sem gervigreind vitnar í af öryggi.
Verkefnabók
Nöfnin skipta minna máli en handverkið. Hér eru verkefnin lýst eins og þau eru: í skrefum, með tækni og útkomu.
01
Hlaðvarps- og fjölmiðlafyrirtæki
Hver þáttur tók áður hálfan vinnudag í eftirvinnslu og birtingu, þar sem myndband, hljóð, stiklur, texti, lógó, stuttmyndbönd og WordPress-færsla voru gerð í höndum.
Nú rennur myndbandsupptakan sjálfkrafa í gegnum ferli sem framleiðir mp3-skrá með hljóðstyrksjöfnun (loudness normalisation), kóðar stiklu fyrir Instagram, sendir myndband á myndbandaveitu (CDN) og útbýr WordPress-færslu með lýsingu, tímakóðum og myndum. Stuttmyndbönd eru klippt út frá völdum tímastimplum með sjálfvirkum skjátextum og hreinsun á hikorðum eins og ehh og sko. Lógó styrktaraðila og lokaspjöld eru felld inn áður en þátturinn fer út.
Það sem áður tók hálfan vinnudag á hvern þátt keyrir nú að mestu sjálft.
02
Fjölmiðlun og markaðssetning
Ein grein átti að ná til mismunandi lesenda á sjö Facebook-síðum, Instagram og X, með ólíkri fyrirsögn og mynd fyrir hverja rás.
Við smíðuðum birtingarkerfi sem tekur eina grein og framleiðir sjálfkrafa ólíka fyrirsögn og mynd fyrir hverja síðu í útliti vörumerkisins. Allt tímasett. Næturkeyrsla greinir hvað gengur best (lestur, deilingar, smellir) og nærir lærdómsskrá sem bætir næstu birtingar.
Margfalt magn efnis, markhópastillt, og markaðsstarf sem lærir sjálfkrafa.
03
Áskriftarfyrirtæki
Rekstraraðili rak þrjú kerfi hlið við hlið (áskriftarvettvang, WooCommerce og hlaðvarpsveitu) og vissi ekki með vissu hverjir voru raunverulega virkir áskrifendur.
Við smíðuðum daglegt afstemmingarferli sem ber saman áskrifendur milli kerfanna og finnur aðganga sem höfðu ekki verið afturkallaðir eftir að greiðslur hættu. Fyrrverandi áskrifendum er skipt í hópa fyrir endurheimtarherferðir (win-back). Lykiltölur sendar í morgunsamantekt daglega.
Tekjuleki stoppaður í fyrstu keyrslu. Yfirsýn alla daga.
04
Hagsmunasamtök og greining
Hagsmunasamtök með skýran málstað en of fáar hendur til að rýna í opinber gögn og skýrslur.
Við smíðuðum mælaborð, meðal annars um ríkisfjármál, sem uppfærast sjálfkrafa úr opinberum gögnum. Staðreyndavakt rýnir skýrslur og ber tölur saman við heimildir. Frumgerð að bréfum frá almenningi til stjórnvalda sem gervigreind hjálpar að semja á málefnalegan hátt.
Málstaðurinn talar í skýrum tölum við fjölmiðla og stjórnvöld.
05
Rannsóknir í jarðvísindum
Rannsóknarhópur í jarðvísindum vildi miðla vísindagögnum um landgrunnið og rökstyðja styrki.
Við greindum landgrunnið með hafdýptargögnum (bathymetry), gervihnatta- og hafísgögnum og lögðum þetta allt ofan á gagnvirk kort. Lagskipt framsetning fyrir fagfólk, einföld sýn fyrir styrkumsóknir og almenning. Rannsókn á styrkjamöguleikum fylgdi með.
Miðlægur vettvangur, rök fyrir styrkjum sem erfitt er að hunsa.
06
Fjártækni og rauntímavinnsla
Markaðsgögn þarf að streyma, vista og greina í beinni allan sólarhringinn, með strax viðvörunum þegar eitthvað hreyfist.
Við smíðuðum streymiskerfi með vöktun, sjálfvirkum viðvörunum og endurræsingu þegar þjónustur haltra. Að auki keyrir greining á fréttamerkjum sem skoðar hvernig fréttir hreyfa gögnin og flaggar atvik sem þarf að rýna.
Rekstur sem sefur rólega. Fréttaatvik tengd við gagnahreyfingar með sönnun.
07
Heildsala (B2B)
Birgjar skiluðu CSV-skrám á ensku, á ólíkum sniðum. Vörulistinn átti að vera á íslensku og uppfærast reglulega.
Við smíðuðum vefinn þannig að hann byggist sjálfkrafa úr CSV-skránum með gervigreindarþýðingu yfir á íslensku og flokkun. Hálfsjálfvirkar birtingar á samfélagsmiðla úr efni birgja, þar sem eigandinn samþykkir hverja færslu með einum smelli.
Vörulistinn er alltaf nýr. Markaðsstarfið heldur sér uppi með smellum.
08
Fjöltyngd neytendavefforrit
Vefforrit þurfti að tala við notendur á mörgum tungumálum og finnast í bæði Google og ChatGPT.
Við smíðuðum vefforrit á ensku, þýsku, spænsku, frönsku og íslensku með gervigreindarröddum, vefbestun og sýnileika í gervigreindarleit. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla og skipulögð gögn fyrir hvert tungumál. Efni skrifað þannig að stór málmódel geta vitnað í það með öryggi.
Forritið sést þar sem notendur eru í dag.
Aðferð
I.
Eina til tvær vikur. Við förum yfir ferla, kerfi og gögn og röðum verkefnum eftir arðsemi.
II.
Fljótleg, sýnileg frumgerð þar sem ávinningurinn er mestur. Þú sérð það virka áður en lengra er haldið.
III.
Smíðað, tengt og prófað í rekstri með raunverulegum gögnum.
IV.
Vöktun, viðhald og reglulegar umbætur. Lausnin batnar með tímanum.
Afstaða
Við bjóðum ekki gervigreind sem hugmynd. Við bjóðum gervigreind sem rekstur: lausn sem er innleidd, tengd og í vinnu, dag eftir dag.
Sjálfvirk
Samband
Við förum yfir ferlana þína í stuttu samtali og metum hvar gervigreind getur létt mesta vinnu.
Bókaðu úttekt