Sjálfvirk

Reykjavík · gervigreind í íslensk fyrirtæki

Gervigreind sem gerir þetta með þér.

Við finnum verkin sem taka tímann, byggjum lausnirnar, tengjum þær við kerfin sem þú notar og rekum þær áfram. Allt á íslensku, allt í beinni.

24/7

Kerfin okkar sofa ekki.

8

Verkefni í rekstri.

Þjónusta

Fjórar leiðir inn. Þú velur hvar þú byrjar.

Gervigreindarúttekt

Við förum yfir ferla, kerfi og gögn og röðum verkefnum eftir arðsemi. Þú færð skýra skýrslu og aðgerðaáætlun.

Innleiðing

Lausnin smíðuð og tengd við kerfin sem þú ert nú þegar í: WordPress, WooCommerce, bókhald, áskriftir, samfélagsmiðlar, Google, Microsoft.

Sjálfvirknivæðing ferla

Útgáfa, birtingar, afstemmingar, skýrslur, þýðingar. Keyrir sjálfkrafa með mannlegu samþykki þar sem það skiptir máli.

Sýnileiki í gervigreindarleit

Vefurinn þinn finnst í ChatGPT, Perplexity og Google AI Overviews. llms.txt, skipulögð gögn og efni sem gervigreind vitnar í.

Verkefnin okkar

Átta verkefni í rekstri. Nafnlaus. Ítarleg.

Við lýsum verkefnunum í smáatriðum vegna þess að það er þar sem gagnið leynist. Hver reitur geymir eina sögu.

Fjölmiðlun · hlaðvarp

01 Sjálfvirk þáttaútgáfa

Vandinn. Hlaðvarps- og fjölmiðlafyrirtæki eyddi hálfum vinnudegi á þátt í eftirvinnslu. Myndband, hljóð, stiklur, texti, lógó, stuttmyndbönd og WordPress-færsla, allt í höndum.

Smíði. Myndbandsupptaka fer sjálfkrafa í pípu sem framleiðir mp3 með hljóðstyrksjöfnun (loudness normalisation), kóðar Instagram-stiklu, sendir myndband á myndbandaveitu (CDN) og útbýr WordPress-færslu með lýsingu, tímakóðum og myndum. Stuttmyndbönd klippt út frá völdum tímastimplum með sjálfvirkum skjátextum og hreinsun á hikorðum (ehh, sko). Lógó styrktaraðila og lokaspjöld sett inn áður en þátturinn fer út.

→ Hálfur vinnudagur varð að eftirliti.

Markaðssetning

02 Birtingar á sjö síður í einu

Ein grein átti að ná til mismunandi markhópa á sjö Facebook-síðum, Instagram og X.

Við smíðuðum birtingarkerfi sem framleiðir sjálfkrafa ólíka fyrirsögn og mynd fyrir hverja rás í útliti vörumerkisins. Næturkeyrsla greinir hvað gengur best (lestur, deilingar, smellir) og nærir lærdómsskrá sem bætir næstu birtingar.

→ Markaðsstarf sem lærir sjálfkrafa.

Áskriftir

03 Afstemming yfir þrjú kerfi

Áskriftarfyrirtæki rak þrjú kerfi hlið við hlið. Enginn vissi hverjir voru raunverulega virkir áskrifendur.

Daglegt afstemmingarferli ber nú saman áskrifendur og finnur aðganga sem höfðu ekki verið afturkallaðir eftir að greiðslur hættu. Fyrrverandi áskrifendum er skipt í hópa fyrir endurheimtarherferðir (win-back). Lykiltölur sendar í morgunsamantekt daglega.

→ Tekjuleki stoppaður í fyrstu keyrslu.

Hagsmunasamtök

04 Mælaborð og staðreyndavakt

Samtök með málstað en of fáar hendur til að rýna í opinber gögn.

Mælaborð, meðal annars um ríkisfjármál, sem uppfærast sjálfkrafa úr opinberum gögnum. Staðreyndavakt rýnir skýrslur og ber tölur saman við heimildir. Frumgerð að bréfum frá almenningi til stjórnvalda sem gervigreind hjálpar að semja á málefnalegan hátt.

→ Málstaðurinn talar í skýrum tölum.

Rannsóknir · jarðvísindi

05 Landgrunn á gagnvirkum kortum

Rannsóknarhópur vildi miðla vísindagögnum um landgrunnið og rökstyðja styrki.

Við greindum landgrunnið með hafdýptargögnum (bathymetry), gervihnatta- og hafísgögnum og lögðum þetta allt ofan á gagnvirk kort. Lagskipt framsetning fyrir fagfólk, einföld sýn fyrir styrkumsóknir og almenning. Rannsókn á styrkjamöguleikum fylgdi.

→ Miðlægur vettvangur fyrir gögn og rök.

Rauntími

06 Markaðsgögn allan sólarhringinn

Markaðsgögn þarf að streyma og vista í beinni, með strax viðvörunum þegar eitthvað hreyfist.

Streymiskerfi með vöktun, sjálfvirkum viðvörunum og endurræsingu þegar þjónustur haltra. Að auki greining á fréttamerkjum sem skoðar hvernig fréttir hreyfa gögnin og flaggar atvik.

→ Rekstur sem sefur rólega á nóttunni.

Heildsala (B2B)

07 Vörulisti sem byggist sjálfur

Birgjar skiluðu CSV-skrám á ensku, á ólíkum sniðum. Vörulistinn átti að vera á íslensku og uppfærast reglulega.

Vörulistavefur byggist sjálfkrafa úr CSV-skrám með gervigreindarþýðingu yfir á íslensku og flokkun. Hálfsjálfvirkar birtingar á samfélagsmiðla úr efni birgja, þar sem eigandinn samþykkir hverja færslu með einum smelli.

→ Vörulistinn er alltaf nýr.

Fjöltyngi · neytendavefur

08 Fjöltyngd neytendaforrit á vefnum

Vefforrit þurfti að tala við notendur á mörgum tungumálum og finnast í bæði Google og ChatGPT.

Vefforrit á ensku, þýsku, spænsku, frönsku og íslensku með gervigreindarröddum, vefbestun og sýnileika í gervigreindarleit. llms.txt, reglur fyrir gervigreindarskriðla og skipulögð gögn fyrir hvert tungumál.

→ Forritið sést þar sem notendur eru.

Ferli · fjögur skref

Frá úttekt í rekstur.

01

Úttekt

1-2 vikur. Ferlar, kerfi og gögn skoðuð. Verkefni raðað eftir arðsemi.

02

Frumgerð

Fljótleg, sýnileg frumgerð. Þú sérð það virka áður en lengra er haldið.

03

Innleiðing

Smíðað, tengt og prófað í rekstri með raunverulegum gögnum.

04

Rekstur

Vöktun og reglulegar umbætur. Lausnin batnar með tímanum.

Samband

Bókaðu þrjátíu mínútna spjall.

Við förum yfir ferlana þína og metum hvar gervigreind getur létt mesta vinnu. Engar skuldbindingar.

hallo@sjalfvirk.is →

1

Netfang. Það dugar.

30

Mínútur í fyrsta spjall.