Hlaðvarps- og fjölmiðlafyrirtæki
Frá upptöku í fullbúinn þátt
Hver þáttur kallaði á hálfan vinnudag í hljóðvinnslu, myndbandsvinnslu og uppsetningu á mörgum miðlum. Sömu handtökin endurtóku sig eftir hverja upptöku.
Með Sjálfvirk / Ferlið tekur við
- Myndbandsupptakan er tekin inn og mp3-skrá búin til með hljóðstyrksjöfnun, svo hlustendur fái jafnt og þægilegt hljóð.
- Stikla er kóðuð fyrir Instagram, aðalmyndband sent á myndbandaveitu og WordPress-færsla útbúin með réttu efni.
- Tímastimplar stýra klippingu stuttmyndbanda. Skjátextar eru settir inn sjálfkrafa og hikorð á borð við „ehh“ og „sko“ hreinsuð.
- Lógó styrktaraðila og lokaspjöld fara inn í klippurnar áður en útgáfupakkinn er tilbúinn til yfirferðar.
Tækni
Hljóð- og myndbandsvinnsla, tímastimplar, sjálfvirk skjátextun, CDN og WordPress.
Ávinningur
Vinna sem tók hálfan vinnudag á hvern þátt keyrir nú að mestu sjálf. Fólkið einbeitir sér að upptökunni og lokaúttektinni.