Gervigreindarúttekt
Við förum yfir ferla, kerfi og gögn. Verkefni eru metin eftir ávinningi og arðsemi, síðan forgangsraðað í skýrri skýrslu og aðgerðaáætlun.
SJÁLFVIRK KERFI / TILBÚIN
Gervigreind tengd við þín kerfi. Sjálfvirkni með skýru inntaki, sýnilegu úttaki og mannlegu samþykki.
> lesa endurtekin_verkefni
> tengja gögn_og_kerfi
> staðfesta samþykktarskref
> hefja sjálfvirkt_flæði
Tilbúið fyrir næstu áskorun01 / Þjónusta
Ekki fleiri verkfæri til að sjá um. Lausnir sem sjá um vinnuna.
Við förum yfir ferla, kerfi og gögn. Verkefni eru metin eftir ávinningi og arðsemi, síðan forgangsraðað í skýrri skýrslu og aðgerðaáætlun.
Við smíðum lausnina og tengjum við kerfin sem þú notar: WordPress, WooCommerce, bókhald, áskriftarkerfi, samfélagsmiðla og Google eða Microsoft. Prófun, afhending og vöktun fylgja.
Útgáfa, birtingar, afstemmingar, skýrslur og þýðingar keyra sjálfkrafa. Við byggjum inn mannlegt samþykki á þeim stöðum þar sem ákvörðunin á að vera hjá þér.
Við undirbúum vefinn fyrir ChatGPT, Perplexity og Google AI Overviews með llms.txt, skriðlareglum, skipulögðum gögnum og skýru efni sem gervigreind getur vitnað í.
02 / Verkefni
Átta verkefni úr ólíkum rekstri. Raunveruleg handtök, skýrar tengingar og sýnilegur ávinningur. Lýsingar eru nafnlausar.
Hlaðvarps- og fjölmiðlafyrirtæki
Hver þáttur kallaði á hálfan vinnudag í hljóðvinnslu, myndbandsvinnslu og uppsetningu á mörgum miðlum. Sömu handtökin endurtóku sig eftir hverja upptöku.
Hljóð- og myndbandsvinnsla, tímastimplar, sjálfvirk skjátextun, CDN og WordPress.
Vinna sem tók hálfan vinnudag á hvern þátt keyrir nú að mestu sjálf. Fólkið einbeitir sér að upptökunni og lokaúttektinni.
✓ Verkefnalýsing lesin / 01 af 08
Efnis- og útgáfufyrirtæki
Hver grein þurfti sérvinnslu fyrir sjö Facebook-síður, Instagram og X. Fyrirsagnir, myndir og birtingartímar tóku tíma og lærdómur af árangri skilaði sér ekki kerfisbundið.
Tengingar við samfélagsmiðla, gervigreindartextar, myndagerð, tímasetningar og lærdómsskrá.
Færri handvirkar birtingar og samræmt útlit. Árangur liðinna birtinga verður að nýtilegri þekkingu fyrir þær næstu.
✓ Verkefnalýsing lesin / 02 af 08
Áskriftarfyrirtæki
Áskriftarvettvangur, WooCommerce/WordPress og hlaðvarpsveita sýndu ekki alltaf sömu stöðu. Aðgangur hafði í sumum tilvikum ekki verið afturkallaður þegar greiðslur hættu.
Áskriftarvettvangur, WooCommerce, WordPress, hlaðvarpsveita og dagleg afstemming.
Tekjuleki varð sýnilegur, frávik auðveldari í eftirfylgni og endurheimt áskrifenda markvissari.
✓ Verkefnalýsing lesin / 03 af 08
Hagsmunasamtök
Opinberar tölur og skýrslur eru dreifðar. Handvirk uppfærsla og sannprófun tefur greiningu og gerir erfiðara að rekja staðhæfingar til heimilda.
Opinber gagnasöfn, gagnamælaborð, heimildasamanburður og gervigreind við textagerð.
Minni vinna við endurteknar uppfærslur og skýrari slóð frá niðurstöðu að heimild. Bréfaþátturinn er hugmynd og frumgerð.
✓ Verkefnalýsing lesin / 04 af 08
Rannsóknar- og stefnumótunarvefur í jarðvísindum
Hafdýpt, gervihnattagögn og upplýsingar um hafís þurfti að lesa saman til að skoða landgrunnið. Ólíkar gagnalindir gerðu yfirsýnina erfiða.
Hafdýptargögn, landupplýsingar, gagnvirk kort, gervihnatta- og hafísgögn.
Dreifð gögn verða að sameiginlegri sjónrænni yfirsýn sem styður rannsóknir og stefnumótun.
✓ Verkefnalýsing lesin / 05 af 08
Gagnadrifinn rekstur
Markaðsgögn berast allan sólarhringinn. Rof í söfnun eða bilun getur skilið eftir eyður, og samhengi fréttamerkja við breytingar í gögnunum þarf sérstaka greiningu.
Gagnastreymi, tímaröðuvistun, rekstrarvöktun, viðvaranir og sjálfvirk endurræsing.
Samfelldari gagnasöfnun og minni þörf á handvirkri gæslu. Reksturinn fær bæði gögn og merki um frávik.
✓ Verkefnalýsing lesin / 06 af 08
Heildsala fyrir fyrirtæki (B2B)
Vöruupplýsingar bárust í CSV-skrám frá birgjum. Uppsetning vörulista, þýðingar og efni fyrir samfélagsmiðla kröfðust endurtekinna handtaka.
CSV-gagnavinnsla, sjálfvirkur vörulistavefur, gervigreindarþýðingar og samþykktarflæði.
Minni afritunarvinna og hraðari leið frá birgjagögnum í íslenskan vörulista. Birtingar eru hálfsjálfvirkar með mannlegu samþykki.
✓ Verkefnalýsing lesin / 07 af 08
Fjöltyngd neytendaforrit á vefnum
Vefforrit þurfa að vera aðgengileg á ólíkum tungumálum og finnast bæði í hefðbundinni leit og svörum gervigreindar. Rödd og texti þurfa að vinna saman.
Fjöltyngd vefforrit, gervigreindarraddir, leitarvélabestun, llms.txt og skriðlareglur.
Sama lausn nýtist fleiri tungumálahópum. Efnið er undirbúið fyrir hefðbundna leit og gervigreindarleit.
✓ Verkefnalýsing lesin / 08 af 08
03 / Ferlið
1-2 vikur
Við kortleggjum tímafreka vinnu, aðgang að gögnum og tækifæri. Þú færð forgangsraðaða aðgerðaáætlun.
Sýnileg niðurstaða
Við prófum mikilvægasta ferlið í lítilli, skýrri lausn sem þú getur metið áður en lengra er farið.
Inn í reksturinn
Lausnin er tengd kerfunum, prófuð og afhent. Samþykktarskref og ábyrgð eru skýr.
Áframhaldandi vöktun
Við fylgjumst með keyrslum, bregðumst við frávikum og bætum lausnina þegar þarfir breytast.
Næsta skref
Arnar Arinbjarnarson hefur sjálfvirknivætt fjölbreytt verkefni og sparað fyrirtækjum nokkur stöðugildi. Nú leitum við að stærri áskorunum. Byrjum á þínum rekstri.
Bókaðu 30 mínútna spjall hallo@sjalfvirk.is